{"product_id":"haustaugu-77424-65759","title":"Haustaugu # 77424","description":"Haustaugu. Ljóð eftir Hannes Pétursson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHannes Pétursson hefur verið eitt ástsælasta skáld þjóðarinnar allt frá því að hans fyrsta ljóðabók kom út árið 1955. Hann hefur sameinað hefð og nútíma í ljóðlist sinni, en jafnframt verið skáld dirfsku og nýjunga. Ljóð Hannesar eiga sér gjarnan rætur í íslenskri náttúru og sögu en þar er samhliða glímt við tilvist okkar hér og nú.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHaustaugu er ellefta ljóðabók Hannesar, en tólf ár eru liðin frá því hann gaf síðast út bók með frumsömdum ljóðum. Hér yrkir maður sem er síungur í ljóðmáli sínu og viðhorfi. Hann hvarflar nú haustaugum yfir umhverfi sitt og tíma, vekur okkur til vitundar um aðkallandi mál og minnist genginna vina á ljúfsáran hátt.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNý ljóðabók frá Hannesi Péturssyni er bókmenntaviðburður og hvalreki öllum þeim sem unna ljóðlist og íslenskri tungu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121079845192,"sku":"OSC-65759","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/77424a.jpg?v=1754714126","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/haustaugu-77424-65759","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}