{"product_id":"haustlitir-12803-14573","title":"Haustlitir # 12803","description":"Haustlitir. Kvæði eftir Maríu Bjarnadóttir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMaría, var fædd 7. júní 1896 í Kárdalstungu í Vatnsdal, d. 11. mars 1976 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Sigríður Hjálmarsdóttir (sonardóttir Bólu-Hjálmars) og Bjarni Jónsson ættaður af Akranesi.\u003cbr\u003eTil Norðfjarðar kom María með bræðrum sínum, sem gerðu hér út á sumarvertíð, fyrst 1913; 17 ára gömul. Þar kynntist hún mannsefni sínu, Bjarna Antoníussyni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBjarni, var fæddur 17. ágúst 1888 á Arnhólsstöðum í Skriðdal, d. 27. maí 1975 á Norðfirði. Faðir hans var Antoníus Björnsson frá Álftafirði, lengst af bóndi á Arnhólsstöðum og Flögu í Skriðdal. Hann bjó um tíma á Kirkjubóli í Vöðlavík, og síðar á Norðfirði. Móðir hans var Guðrún Kristín Arnfinnsdóttir frá Arnhólsstöðum í Skriðdal.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMaría og Bjarni giftust 2. nóvember 1916 og hófu búskap sinn á Norðfirði. Bjarni var þá sjómaður. Á Norðfirði bjuggu þau að mestu leyti samfellt til 1930. Árið 1930 fluttu þau til Akureyrar og voru þar og á Siglufirði og Ólafsfirði um hríð. 1937 lá leiðin aftur austur. Í Mjóafirði bjuggu þau nokkur ár, fyrst á Krossi og síðan á reykjum. Þaðan fluttu þau aftur til Norðfjarðar árið 1944. Þau byggðu sér hús við Mýrargötu, þar sem þau bjuggu þau til þau fluttu til Reykjavíkur1960.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBáðir foreldrar Maríu voru skáldmælt. Árið 1964 gaf María út lítið ljóðakver, sem hún kallaði Haustliti. Elsta ljóðið þar sem getið er ártals er frá 1913, en það orti hún til móður sinnar. Í kverinu eru um 160 ljóð.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126651257160,"sku":"OSC-14573","price":2600.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/maja_bjarna.jpg?v=1754831200","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/haustlitir-12803-14573","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}