{"product_id":"heiin-62768-55364","title":"Heiðin # 62768","description":"Heiðin. Kvæðabók eftir Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoða.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHöfundur þessarar ljóðabókar er Sveinbjörn Beinteinsson á Draghálsi í Svínadal. Hann er yngstur af átta systkinum frá Grafardal Foreldrar hans voru hjónin Helga Pétursdóttir og Beinteinn Einarsson. A heimili þeirra var ljóðagerð og kveðskapur dagleg iðja, sem Sveinbjörn meðtók með móðurmjólkinni. Hann er fæddur 4. júlí 1924, og er bókin gefin út í tilefni af 60 ára afmæli hans 4. júlí 1984.\u003cbr\u003eSveinbjörn hefur átt heima á Draghálsi síðan 1934 og hefur stundað búskap frá 1944. Eftir hann hafa komið út fjögur ljóðakver, og að auki \"Bragfræði og háttatal\" 1953, kennslubók í rímna- og vísnakveðskap. Margt af kvæðum hans hefur birst í blöðum og tímaritum. Hann hefur í rúman áratug verið allsherjargoði Ásatrúarfélagsins og er hann mörgum kunnur utan lands og innan vegna þeirra starfa.\u003cbr\u003e(káputexti)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122754453832,"sku":"OSC-55364","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/62768.jpg?v=1754749411","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/heiin-62768-55364","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}