{"product_id":"heivindar-37466-10706","title":"Heiðvindar # 37466","description":"Heiðvindar. Kvæði eftir Jakob Thorarensen.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ Eimreiðinni 39.árg. 4.hefti 1933 er fjallað um Heiðvinda Jakobs Thorarensens. Þar segir m.a.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHin sögulegu kvæði, Eyjólfur Bölverksson og Fanginn á St. Helenu,\u003cbr\u003eeru góð kvæði hvert á sinn hátt, en Hildigunnur er þeirra miklu glæsilegast, og bætist það nú við í hópinn með Guðrúnu Ósvífursdóttur, Ásdísi á Bjargi, Snorra goða og þessháttar afbragðs kvæðum skáldsins.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞað var ekki árennilegt að leita ráðahags við Hildigunni, fyrst og fremst vegna stolts hennar og ofmetnaðar, og eins vegna hins, hvernig hún var í sveit sett\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFlokkur rekka, fær í vanda,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003efeykiveg um straum og sanda\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ebrauzt þá austur bónorðsför.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGoðorðslausum höldi að heita\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehug og mund, því baðst hún frá.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEn föl ei voru forráð sveita,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog fyrðar urðu loks að breyta\u003cbr\u003e\u003cbr\u003estórum landsins stjórnarskrá.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSú var mærin mest í landi,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003emikið þótti tilvinnandi\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehennar blíðu og hylli að ná.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEn hæst rís kvæðið í aðdraganda hefndarinnar eftir víg Höskulds:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAtburðanna ógnavagni\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eekið var af duldu magni\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eskemstu leið til blóðs og báls.\u003cbr\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126886662472,"sku":"OSC-10706","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/37466.jpg?v=1754835531","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/heivindar-37466-10706","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}