{"product_id":"helgum-steini-57489-51538","title":"Í helgum steini # 57489","description":"Í helgum steini. Hugvekjur og predíkanir eftir Karl Sigurbjörnsson.\u003cbr\u003eÞað er list að tala inn í hraðfleygan nútímann og fá fólk til að nema staðar um stund og hlusta. Séra Karli Sigurbjörnssyni, biskupi, tekst það með eftirminnilegum hætti í þessari bók sem geymir úrval af ræðum hans.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBoðskapur hans er skýr og einlægur, afdráttarlaus og kröftugur. Málfarið vandað og snjallt. Hann tekur lesandann óttalaust með sér inn í hringiðu samtímans. Saman skoða þeir sígilda texta kristinnar trúar með ferskum augum og velta fyrir sér boðskap þeirra. Einnig er staldrað við á mikilvægum tímamótum í sögu lands og þjóðar, kirkju og safnaða, og atburða minnst sem þungir voru á metunum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eLífið er vettvangur manneskjunnar þar sem trú og samfélag skarast. Skýrt kemur fram að trúin á brýnt erindi við nútímafólk og dregur höfundur fram ótal dæmi um það í ræðum sínum bæði úr samtíma sínum, sögu lands og þjóðar, bókmenntum, heimspeki, hversdagslegri speki og barnavisku.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAllt er ofið saman með listilegum og áhugaverðum hætti sem lesandinn hrífst af og hugsar með sér: Lífið er góð gjöf og þessi bók hjálpar mér til að skilja það og þakka fyrir. Þetta er bók sem ég vil lesa og hafa á borði mínu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123306266952,"sku":"OSC-51538","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/57489.jpg?v=1754760271","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/helgum-steini-57489-51538","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}