{"product_id":"hella-33912-30705","title":"Hella # 33912","description":"Hella. Skáldsaga eftir Hallgrím Helgason.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eInn af krambúðarlegu afgreiðsluborði halla bólgin gólfin niður í hornin að kvistsmognum listum. Rakur svali ríkir í lofti og allir veggir eru þaktir skrautlegum plastöskjum á stærð við bækur en snúa allar kápunni fram. Þær prýða handmálaðar ljósmyndir í sterkum litum, þó mest beri á rauðu og eldrauðu, og eru gjarnan af einni aðalpersónu og skugga hennar. Yfir axlir og á milli læra getur síðan að líta minni og minni aukapersónur eftir því sem út í bakgrunninn líður þar sem ef til vill örlar á hraðbáti eða sportbíl í þann veg að springa í loft upp. Í hnipri frá þessum miklu atburðum situr boginn maður á bak við afgreiðsluborðið með hár yfir eyrum og gler fyrir augum, í þófkenndri brúnni ullarpeysu. Undan fingrum hans stendur lóðrétt reykjarsúla og hann situr líkt og hann orni sér við glóð hennar. Undir borðinu, fyrir framan hann, er stór öskubakki fullur af stubbum, hann drepur í þeim á líkan hátt og hann búi þá til og sé að safna. Og sjálfur hefur hann séð allar myndirnar í þessu safni sem hann skiptir í þrjá flokka.\u003cbr\u003eSpennumyndir. Gamanmyndir. Góðar myndir. Getur spólað þær allar til baka í kollinum á sér og á skoðun sína við hverri, sé spurt. “Góð með matnum”, “Ekta löggumynd”, “Tólftomman af Top Gun”.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125451817288,"sku":"OSC-30705","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/33913.jpg?v=1754807400","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hella-33912-30705","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}