{"product_id":"hin-hvitu-skip-53351-48111","title":"Hin hvítu skip # 53351","description":"Hin hvítu skip. Ljóð eftir Guðmund Böðvarsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ 12. árg. Einreiðarinnar 22. tbl. er fjallað um Hin hvítu skip Guðmundar Böðvarssonar. Þar segir: Bókaútgáfan „Heimskringla\" hefir nýlega gefið út nýja ljóðabók\u003cbr\u003eeftir Guðmund bónda Böðvarsson\u003cbr\u003eá Kirkjubóli á Hvitársíðu, er heitir\u003cbr\u003eHin hvítu skip. Tímaritið Eimreiðin kynti hann íslenskum lesendum\u003cbr\u003efyrir nokkrum árum, með kvæðum\u003cbr\u003eer vöktu talsverða athygli, en fæstir\u003cbr\u003evissu þá hver maðurinn var. Fyrir\u003cbr\u003etæpum þrem árum gaf hann út\u003cbr\u003eljóðabókina Kysti mig sól. Fekk hún\u003cbr\u003ehlýjar viðtökur og þóttust margir sjá\u003cbr\u003eað þarna væri efnilegt ljóðskáld á\u003cbr\u003eferðinni. Það er óhætt að fullyrða,\u003cbr\u003eað með hinni nýju bók efnir Guðmundur þær vonir — og betur til\u003cbr\u003e— sem menn gerðu sjer um hann\u003cbr\u003eeftir að hafa lesið fyrri bókina.\u003cbr\u003eHjer er um stórframför að ræða.\u003cbr\u003eGuðmundur yrkir ekki aðeins altaf\u003cbr\u003evel heldur oftast nær ágætlega. Hin\u003cbr\u003ehvitu skip færa nokkur afbragðskvæði, sem eru meðal hins allra\u003cbr\u003ebesta, er ort hefir verið á íslandi\u003cbr\u003eá seinustu árum. Hjer er ekki rúm\u003cbr\u003etil að rekja þetta nánar, en þó má\u003cbr\u003eminnast á kvæði eins og Við hverfisteininn 1936, Fjarða-Björn, Eyrar-rós o. fl. — Það er sæmd íslenskri\u003cbr\u003ebændastjett að enn skuli hún ala\u003cbr\u003eupp menn eins og Guðmund Böðvarsson. Sem skáld lætur hann lítið yfir sjer, er heill og hreinn, þróttmikill með köflum en þó er eins og saknaðarstrengur titri i hörpu hans.\u003cbr\u003eHann yrkir af innri þörf, hefir fengið sönggáfuna í vöggugjöf, og hefir\u003cbr\u003eekki grafið hana i jörðu sem betur\u003cbr\u003efer.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMeð þessari nýju bók hefir Guðmundur tekið sjer sæti á fremsta\u003cbr\u003ebekk meðal íslenskra Ijóðskálda.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123928990024,"sku":"OSC-48111","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/53351.jpg?v=1754770508","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hin-hvitu-skip-53351-48111","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}