{"product_id":"hja-grassins-rot-50999-46197","title":"... hjá grassins rót # 50999","description":"... hjá grassins rót. Hólmfríður K. Gunnarsdóttir segir sögu formæðra- og feðra sinna.\u003cbr\u003eMaðurinn er aldrei einn. Allir eiga formæður og forfeður sem hvert og eitt á sína sögu. Oft er saga forfeðranna einhvers staðar rakin en saga formæðranna skrifuð í öskuna. Hér segir af fólki sem elskaði og missti, gladdist og hryggðist, tók því sem að höndum bar enda oftast ekki um annað að ræða.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞetta fólk var ekki merkilegra en annað fólk en ekki heldur ómerkara. Þjónustan á Bessastöðum, sem eignaðist barn í lausaleik, sýslumannsdóttirin í Fljótshlíðinni og stúlkan af Laxárdalnum, sem flúði með barnið sitt í fanginu yfir mýrar og móa vestur í Ameríku, eru allar horfnar af sjónarsviðinu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHólmfríður Kolbrún Gunnarsdóttir segir sögur þessara kvenna og annarra kvenna og karla sem koma við hennar eigin sögu. Sjálf rifjar hún upp minningar frá því að hún var barn í norðlenskum dal og framtíðin óskrifað blað.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124082934088,"sku":"OSC-46197","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/50999.jpg?v=1754775893","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hja-grassins-rot-50999-46197","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}