{"product_id":"hjarta-slands-78810-49992","title":"Hjarta Íslands # 78810","description":"Hjarta Íslands. Perlur hálendisins. Texti Gunnsteinn Ólafsson, ljósmyndir Páll Stefánsson.\u003cbr\u003eHjarta Íslands er sannkallaður kjörgripur öllum þeim er unna náttúru landsins. Hér birtist hálendið í allri sinni dýrð í glæsilegu samspili fróðleiks og mynda.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ bókinni sprettur hálendi Íslands fram í aðgengilegum texta og stórbrotnum ljósmyndum. Á síðum hennar fléttast saman jarðfræði, náttúrufræði, þjóðtrú og bókmenntir. Magnaðar ljósmyndir glæða frásögnina enn frekara lífi. Og lesandanum opnast með eftirminnilegum hætti sá dýri arfur sem býr í víðernum landsins.\u003cbr\u003eÍ bókinni er fjallað um allar helstu perlur hálendisins frá Eiríksjökli í vestri til Lónsöræfa í austri; frá Jökulsárgljúfrum í norðri til Eyjafjallajökuls í suðri – svæðið sem gjarnan er kallað hjarta Íslands.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGunnsteinn Ólafsson er höfundur texta bókarinnar. Hann á að baki áratuga reynslu sem leiðsögumaður um Ísland. Páll Stefánsson tók allar ljósmyndir en hann hefur myndað náttúru landsins í meira en þrjátíu ár. Hér leggja Gunnsteinn og Páll saman krafta sína í stórvirki sem óhætt er að kalla óð til Íslands.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123685097800,"sku":"OSC-49992","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/55564.jpg?v=1754764569","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hjarta-slands-78810-49992","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}