{"product_id":"hljombodar-90740","title":"Hljómboðar # 90740","description":"\u003cp\u003eHljómboðar. Eftir Þórarinn Jónsson frá Háreksstöðum. \u003cbr\u003eHér eru Hljómboðar Þórarins, þrjú hefti. \u003cbr\u003eÞórarinn Jónsson var fæddur á Háreksstöðum í Jökuldalsheiði 15. september 1873. Foreldrar hans voru Jón Benjamínsson, bóndi þar, og fyrri kona hans Guðrún Jónsdóttir. \u003cbr\u003eÞórarinn ólst upp í föðurhúsum og naut eigi annarar mentunar en þar var fáanleg og lögskyld var til fermingar. Hugur hans hneigðist snemma til söngs, og hafði hann í æsku fagra söngrödd, en lagði litla rækt við hana síðar. Innan við tvítugs aldurs fékk hann sér stofuorgel, og var fyrsti kennari hans Kand. Vigfús Þórðarson, síðar prestur í Eydölum, og tileinkar Þórarinn honum eitt lagið í einu af söngheftum sínum. Síðar naut hann tilsagnar hjá Magnúsi Einarssyni á Akureyri og Brynjólfi Þorlákssyni í Reykjavík.\u003cbr\u003eSumarið 1903 flutti Þórarinn vestur um haf og átti heima í Winnipeg í næstu 20 ár. Rak hann þar ýmist matvöruverslun eða rakara og hárskurðarstofu. Í mörg ár lék hann á orgelið í Unítarakirkjunni og stjórnaði þar kirkjusöng. Vorið 1923 fór hann vestur að Kyrrahafi og bjó lengst um í Seattle, Wash., næstu 8 ár. Þar sá hann og um kirkjusöng um lengri eða skemri tíma. Síðustu ár hans þar var fjárkreppan í almætti sínu og rán, þjófnaður og gripdeildir daglegir viðburðir. Fór Þórarinn ekki varhluta af því, og svifti hann því tjöldum og fór alfari heim til Íslands. Settist hann að á Seyðisfirði og átti þar heima til dauðadags. Hann andaðist þar 21. jan. 1941. Þórarinn var ókvæntur alla ævi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003eGóð eintök, óbundin.\u003c\/p\u003e","brand":"bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54253889978696,"sku":null,"price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/90740.jpg?v=1791471484","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hljombodar-90740","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}