{"product_id":"hlutskipti-manns-70782-30716","title":"Hlutskipti manns # 70782","description":"Hlutskipti manns. Skáldsaga eftir André Malraux. Thor Vilhjálmsson þýddi.\u003cbr\u003eVantar fimm mínútur, sagði Tséng. Mennirnir í hópi hans biðu. Þetta voru allt verkamenn úr spunaverksmiðjunum, klæddir bláum strigafötum. Allir voru þeir rakaðir, allir horaðir, - allir stæltir. Á undan Tséng hafði dauðinn kosið sér sína úr liðinu. Tveir voru með riffil undir handleggnum, hlaupið vísaði til jarðar. Sjö voru með skammbyssur úr Sjan-Töng; einn með eina handsprengju; nokkrir földu þær í vösum sínum. Einir þrjátíu voru með hnífa, kylfur, byssustingi; átta eða tíu vopnlausir krupu hjá hrúgum af tuskum, benzínbrúsum, vírrúllum. Unglingur var að skoða stóra naglagaura með breiðum haus sem hann dró upp úr poka eins og það væri útsæðiskorn: \"vissulega lengri en í gegnum hestaskeifur ...\" Eins konar Court des Miracles, Kraftaverkatorg, en hér var allt sameinað undir merkjum haturs og eindrægni.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125451194696,"sku":"OSC-30716","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/32842.jpg?v=1754807371","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hlutskipti-manns-70782-30716","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}