{"product_id":"holdi-hemur-andann-29704-28132","title":"Holdið hemur andann # 29704","description":"Holdið hemur andann. Um fagurfræði í skáldskap Guðbergs Bergssonar. Eftir Birnu Bjarnadóttir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBrautryðjendaverk í rannsóknum á höfundarverki Guðbergs Bergssonar sem er lykilhöfundur í íslenskum samtímaskáldskap og raunar einn af mikilhæfustu listamönnum íslenskrar menningarsögu á síðustu áratugum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEkki er um hefbundna bókmenntafræðilega greiningu á verkum Guðbergs að ræða, heldur frekar sviðsetningu og úrvinnslu hugmyndasögulegrar og fagurfræðilegrar samræðu. Því er haldið fram að fagurfræði í skáldskap Guðbergs feli ekki aðeins í sér samræðu við íslenska menningu og samfélag, heldur megi finna í henni hugmyndasögulegar samsvaranir við ákveðin skáld og heimspekinga í vestrænni hugmyndna- og frásagnarhefð. Meginmarkmið bókarinnar er að greina þessa samræðu, sem með góðu móti má segja byggja á fagurfræðilegri róttækni.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125575319880,"sku":"OSC-28132","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/29704.jpg?v=1754811432","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/holdi-hemur-andann-29704-28132","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}