{"product_id":"horft-yfir-sjonarsvii-70431-60788","title":"Horft yfir sjónarsviðið # 70431","description":"Horft yfir sjónarsviðið. Ljóðmæli eftir Ingibjörgu Benediktsdóttur.\u003cbr\u003eIngibjörg Benediktsdóttir er fædd 11. ágúst 1885 á Bergsstöðum í Hallárdal, Austur-Húnavatnssýslu, og bjó þar til tvítugsaldurs. Hún lauk prófi frá gagnfræðaskólanum á Akureyri árið 1909 og kenndi m.a. við kvennaskólann á Blönduósi og síðar barnaskólann í Reykjavík. Árið 1917 giftist hún Steinþóri Guðmundssyni. Eignuðust þau fjögur börn. Þau bjuggu á Akureyri til ársins 1933 en fluttust þá til Reykjavíkur. Þar lést Ingibjörg eftir langa vanheilsu 9. október 1953.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eIngibjörg tók virkan þátt í félagsmálum, m.a. góðtemplara. Hún var í Kvenréttindafélagi Íslands og um skeið í stjórn þess. Hún flutti erindi á fundum og í útvarpi og skrifaði smásögur, ljóð og ritgerðir sem birtust í blöðum og tímaritum. Hún var í tvö ár ritstjóri tímaritsins Nýjar kvöldvökur sem kom út á Akureyri. Hún gaf út tvær ljóðabækur, \u003ci\u003eFrá afdal – til Aðalstrætis\u003c\/i\u003e og \u003ci\u003eHorft yfir sjónarsviðið\u003c\/i\u003e. (www.skald.is).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121821188424,"sku":"OSC-60788","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/70431.jpg?v=1754731114","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/horft-yfir-sjonarsvii-70431-60788","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}