{"product_id":"hrakfallabalkurinn-6277-997","title":"Hrakfallabálkurinn # 6277","description":"Hrakfallabálkurinn. Viðtöl við Plum kaupmann í Ólafsvík.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\"Jakob Plum hafði Ólafsvík, góðlyndur maður og einfaldur og eigi mjög heppinn í kaupförum\", segir Espólín um þann mann, sem er söguhetja þessarar bókar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJakob Plum kom til Ólafsvíkur 17 ára sem lærlingur við konungsverslunina dönsku og tók þar við kaupmennsku, þegar einokun var aflétt 1788. Hann er þannig einn fyrsti, ef ekki fyrsti \"fríhöndlarinn\" á Íslandi, eins og þeir nefndust sem hófu frjálsa verslun í landinu á eigin spýtur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ePlum gaf út tvær bækur, þar sem hann rekur verslunarsögu sína og mannraunir á sjó og landi, segir frá kynnum sínum af Íslendingum og lýsir sóknum þeim, sem hann var kunnugastur: Ingjaldshóls- og Fróðársóknum á Snæfellsnesi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁ grundvelli þessara heimilda hefur Einar Bragi sett á svið viðtöl við Jakob Plum, sem eru í senn hraðstreym skemmtilesning, eftirminnileg mannlýsing og áreiðanleg frásaga af lífi íslensks fólks og skiptum þess við erlent vald, allt yljað hlýrri kímni og samúð með aðkrepptu mannlífi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBókin er prýdd myndum frá Íslandi og Kaupmannahöfn á þessum tíma, svo lesandinn á auðvelt með að hverfa um stund tvær aldir aftur í tímann og lifa lífi fólks sem þá var uppi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51127161651528,"sku":"OSC-995","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/66293_e6516cde-16b2-43df-95ba-73931b2ba5c3.jpg?v=1754840101","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hrakfallabalkurinn-6277-997","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}