{"product_id":"hraunfolki-74916-49497","title":"Hraunfólkið # 74916","description":"Hraunfólkið. Saga úr Bláskógum. Skáldsaga eftir Björn Th. Björnsson.\u003cbr\u003eSnorrabúð var stekkur á fyrri hluta 19. aldar þegar þessi saga gerist. Páll Þorláksson var þá prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Magnúsar getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa kotbónda og Þingvallaklerka og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.\u003cbr\u003eÚr þessum efnivið hefur Björn Th. Björnsson sett saman bráðskemmtilega og listilega fléttaða skáldsögu með ógleymanlegum persónum og í þeim seiðandi stíl sem lesendur þekkja úr fyrri bókum hans. Í meðförum Björns birtast Þingvellir lesendum á nýjan og óvæntan hátt og sagan veitir innsýn í fjölskrúðugt mannlíf á þessum harðbýla stað áður en um hann sveipaðist helgi sjálfstæðisbaráttunnar. (Káputexti).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123756302664,"sku":"OSC-49497","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/55011.jpg?v=1754766145","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hraunfolki-74916-49497","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}