{"product_id":"hret-og-solstafir-87447-28169","title":"Hret og sólstafir # 87447","description":"Hret og sólstafir. Ljóð og lausavísur eftir Sigríði Jónsdóttir frá Stöpum.\u003cbr\u003eHret og sólstafir er eina bók Sigríðar frá Stöpum.\u003cbr\u003eSigríður var ættuð frá Stöpum í Tungusveit. Hún flutti til Reykjavíkur á fimmta áratugnum, bjó fyrst í Kamp Knox en reisti sér svo hús sem hún nefndi Stapar.\u003cbr\u003eSigríður var mikill dýravinur. Hér syðra hélt hún löngum húsketti, einn eða fleiri í senn. Voru þeir henni félagar, sem hún hlynnti að eftir föngum. Fyrir norðan átti hún góðhesta og mun hafa setið þá af kunnáttu, hvort heldur söðli eða hnakk. Fór hún víst oftar en einu sinni ríðandi milli héraða og landsfjórðunga. Hér er ein vísa hennar, kveðin á leið heim til átthaganna:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHleyp ég af baki, herði á gjörð,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehugurinn hvílist eigi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSkyldi eg líta Skagafjörð\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003evið skinið af þessum degi?","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440253759816,"sku":"OSC-28169","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/29756.jpg?v=1770470739","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hret-og-solstafir-87447-28169","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}