{"product_id":"hugsjonaeldur-62586-42561","title":"Hugsjónaeldur # 62586","description":"Hugsjónaeldur. Minningar um Einar Olgeirsson. Sólveig Kristín Einarsdóttir fjallar um föður sinn.\u003cbr\u003eEinar Olgeirsson var einn umdeildasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðustu aldar á Íslandi. Hann var leiðtogi kommúnista og sósíalista, heillaði fjölmarga til liðs við málstað sinn með annálaðri mælsku og átti öðrum meiri þátt í að þeir urðu sterkari á Íslandi en í nágrannalöndunum. En hann var einnig vinur og samstarfsmaður Ólafs Thors, stjórnaði síldarvinnslu og verkamannafélagi á sama tíma og hafði þó ætlað að helga sig bókmenntum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ þessari bók fjallar Sólveig Einarsdóttir um föður sinn frá ýmsum hliðum, um hvernig pólitískt líf hans og einkalíf fléttaðist saman, hvernig skoðanir hans mótuðust og um fólkið sem stóð á bak við byltingarleiðtogann. Hún fjallar líka um það hvernig var að alast upp sem barn kommúnistaforingja í miðju köldu stríði. En ekki síst fjallar þessi bók um afl hugsjóna og hverju er til fórnandi fyrir þær.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBókin er prýdd fjölmörgum ljósmyndum sem aldrei áður hafa komið fyrir almenningssjónir.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124762607944,"sku":"OSC-42561","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/46568.jpg?v=1754785377","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hugsjonaeldur-62586-42561","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}