{"product_id":"hundakaeti-88222-54922","title":"Hundakæti # 88222","description":"Hundakæti. Dagbækur Ólafs Davíðssonar 1881-1884. Þorsteinn Vilhjálmsson annaðist útgáfuna og ritar inngang.\u003cbr\u003eDagbækurnar sem Ólafur Davíðsson skrifaði þegar hann var um tvítugt eru einstök heimild um líf og hugsunarhátt kornungra menntamanna í Reykjavík og Kaupmannahöfn fyrr á tíð, merkilegur aldarspegill en um leið fágætur skemmtilestur þar sem fjölmörgum þekktum einstaklingum – skólastrákum, kennurum, betri borgurum og almenningi – eru gerð skil á kómískan og óvæginn hátt. Ólafur lýsir meðal annars svallveislum þar sem boðið var upp á bjór, koníak, vindla og vínarbrauð, segir kjaftasögur úr bæjarlífinu og fjallar afar opinskátt um eigin tilfinningar – ekki síst til ungs skólabróður síns.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓlafur Davíðsson (1862–1903) var náttúrufræðingur og þjóðfræðingur og er þekktastur fyrir þjóðsagnasöfnun sína. Dagbækur hans frá skólaárunum voru gefnar út 1955 en þá töluvert ritskoðaðar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞorsteinn Vilhjálmsson fræðimaður og þýðandi annast þessa útgáfu og skrifar ítarlegan formála um Ólaf, dagbækurnar og tíðarandann.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440340955464,"sku":"OSC-54922","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/62149.jpg?v=1770471710","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hundakaeti-88222-54922","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}