{"product_id":"hunvetnskt-bros-i-augum-82842-33212","title":"Húnvetnskt bros í augum # 82842","description":"Húnvetnskt bros í augum. Ljóð eftir Rögnvald Rögnvaldsson.\u003cbr\u003eRögnvaldur var fæddur að Litlu-Þverá í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu 21. október 1912, en hann lést á Akureyri í nóvember árið 1987. Bókin var gefin út í tilefni af 90 ára árstíðar Rögnvaldar. Rögnvaldur bjó lengst af á Akureyri eða frá árinu 1949. Hann fékkst mikið við verslunarstörf, rak m.a. ásamt konu sinni barnafataverslunina Hlín og Tóbaksbúðina, en jafnframt starfaði hann sem eftirlitsmaður með bæjarsalernunum sem voru til húsa undir kirkjutröppunum auk þess að selja þar sælgæti og tóbak. \"Þarna undir kirkjutröppunum skapaðist merkileg stemning. Þar var afar gestkvæmt. Rögnvaldur var skemmtilegur maður og margir litu við hjá honum reglulega til að eiga við hann orðaskipti og heyra nýjustu vísurnar. Þarna rakst maður á landsþekkta hagyrðinga og skáld, þangað komu alþingismenn og forstjórar, blaðamenn og rithöfundar, sjómenn, verkamenn og bændur og var enginn greinarmunur gerður á stéttum Þar sem Rögnvaldur réð ríkjum ríkti fullkomin jafnaðarmennska,\" segir í formála Ragnars Inga Aðalsteinssonar frá Vaðbrekku. \"Sjoppan undir kirkjutröppunum var griðastaður sem margir litu á sem eins konar annað heimili.\" Rögnvaldur gerðist síðar húsvörður við Ráðhúsið á Akureyri og hélt því starfi uns hann fór á eftirlaun.\u003cbr\u003eHúnvetnskt bros er eina bókin sem ut kom með kveðskap Rögnavaldar Rögnvaldssonar.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125372846408,"sku":"OSC-33212","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/35763.jpg?v=1754803494","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hunvetnskt-bros-i-augum-82842-33212","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}