{"product_id":"hvammar-76211-64990","title":"Hvammar # 76211","description":"Hvammar. Ljóðmæli eptir Einar Benediktsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinar fæddist október árið 1864. Faðir hans, Benedikt Sveinsson, var kunnur stjórnmálamaður og athafnamaður, en móðir Einars, Katrín Einarsdóttir, vel gefin kona og mælsk. Sagði Einar sjálfur að frá henni hefði hann fengið skáldagáfuna. Einar gekk í Lærða skólann í Reykjavík og varð stúdent 1884. Þaðan lá leiðin í Kaupmannahafnarháskóla þar sem hann nam lögfræði og lauk því námi árið 1892.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eHvammar\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHér gljá þeir í allra átta sól\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eút og suður, með blómguð skjól.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVið hvammana sátust blessuð ból,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem bundu moldir og sanda.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞar treindist vor björk, undir tönn og hníf,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþar treysti á stofna, þar ólust líf,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003evið ísa op bál, undir höggi og hlíf,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem hagvenja barnsins anda.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞar áttuðust hugir við útrænt skaut;\u003cbr\u003e\u003cbr\u003etil alveldis beinist ein skínandi braut;\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþar fullvaxta sál, við sigraða þraut,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003efær sjón yfir röðla og jarðir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHáförul, djúpsækin hœðamögn\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehrærast i duptsins lægstu ögn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOg boðskapir óma, í engla þögn,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eút yfir foldanna hjarðir.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121153671496,"sku":"OSC-64990","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/76211.jpg?v=1754716693","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hvammar-76211-64990","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}