{"product_id":"hvar-endar-maur-67242-58524","title":"Hvar endar maður? # 67242","description":"Hvar endar maður? Ljóð eftir Jónas Þorbjarnarson.\u003cbr\u003eHér fylgir lesandi ljóðmælanda í ferðum hans um landið. Í einu ljóðinu skýtur upp kolli ógnvænleg reynsla úr bernsku, sagt er frá dvöl á Ítalíu, vináttu, ást og sorgum, og í sumum ljóðanna eru dregnar upp augnabliksmyndir sem fylgja út í daginn. Ljóð Jónasar eru ekki átakamikil en fegurð eða ógn augnabliksins stendur lesanda ljóslifandi fyrir sjónum. Hér er á ferð nútímakveðskapur líkt og í fyrri verkum höfundar, en þetta er sjöunda ljóðabók hans. (Bókatíðindi 2005).\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eGrótta\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁreiti frá kríunni\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog konum að spóka sig en það er\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eallt öðruvísi, þær gera ekki árás\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþótt komi reyndar mjög nálægt\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eer við mætumst\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehöggfæri satt að segja\u003cbr\u003e\u003cbr\u003een í mesta lagi gjóað til mín auga\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eég bægi þeim frá með hendinni\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ekríunum, þær koma aftur\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþær misskilja mig illilega\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog hafa alltaf gert\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eí samanburði við kríur\u003cbr\u003e\u003cbr\u003evirðast konurnar meinleysisgrey\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003een þeirra áreiti ristir samt ólíkt dýpra\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog stafar ekki af misskilningi","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122161418568,"sku":"OSC-58524","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/67242.jpg?v=1754738929","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hvar-endar-maur-67242-58524","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}