{"product_id":"hvar-sem-eg-ver-83751-45225","title":"Hvar sem ég verð # 83751","description":"Hvar sem ég verð. Ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttir.\u003cbr\u003eNú eru átta ár liðin síðan Ingibjörg sendi frá sér ljóðabókina Höfuð konunnar sem á sínum tíma hlaut afburða dóma gagnrýnenda og hlýjar viðtökur lesenda. Í þessari sjöttu ljóðabók Ingibjargar er ort um hverfulleika lífsins, grimmd þess og óbilgirni, sjálfa lífshvötina andspænis tortímingunni og löngu liðna tíð í miðri þeirri andrá sem var að líða. Áhrifamikið og heilsteypt verk eins af ágætustu ljóðskáldum okkar. ( Bókatíðindi 2002).\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eKonan í speglinum\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKonan í speglinum\u003cbr\u003e\u003cbr\u003evindur upp á sig\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esnýr baki í mig\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþenur herðablöðin\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eblakar þeim hægt\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehefst á loft\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eflýgur\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eupp og til hægri\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eút úr myndinni\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eofurhægt\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþað síðasta sem ég sé\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eer skórinn\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eá vinstra fæti","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124128547144,"sku":"OSC-45225","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/49835.jpg?v=1754778713","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hvar-sem-eg-ver-83751-45225","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}