{"product_id":"hvitri-verond-62904-55454","title":"Á hvítri verönd # 62904","description":"Á hvítri verönd. Ljóð eftir Þóru Jónsdóttur.\u003cbr\u003eÞóra Jónsdóttir er fædd 17. janúar 1925 á Bessastöðum á Álftanesi en fluttist á barnsaldri með fjölskyldu sinni að Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu og ólst þar upp. Hún nam við Alþýðuskólann á Laugum í Reykjadal á árunum 1940 til 1942 og síðar við Menntaskólann á Akureyri þar sem hún lauk stúdentsprófi árið 1948. Þóra kenndi við Flensborgarskólann í Hafnarfirði veturinn 1948 til1949 en hélt síðan til Kaupmannahafnar þar sem hún las bókmenntir við Hafnarháskóla frá 1949 til 1952. Eftir að hún kom aftur til Íslands fór Þóra í Kennaraskóla Íslands og lauk prófi þaðan árið1968. Þóra starfaði á Borgarbókasafni Reykjavíkur frá 1975 til 1982.\u003cbr\u003eFyrsta ljóðabók Þóru, Leit að tjaldstæði, kom út árið 1973, en síðan hefur hún sent frá sér fjölda ljóðabóka auk ljóðaþýðinga. Þá hafa komið út tvær bækur eftir Þóru með stuttum ljóðrænum, ævisögulegum prósatextum. Safnrit með ljóðum úr fyrstu sjö ljóðabókum Þóru kom út hjá bókaforlaginu Sölku haustið 2005 undir titilinum Landið í brjóstinu.\u003cbr\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122745311560,"sku":"OSC-55454","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/62904.jpg?v=1754749081","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hvitri-verond-62904-55454","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}