{"product_id":"ingrofi-14-april-1931-55106-49573","title":"Þingrofið 14. apríl 1931 # 55106","description":"Þingrofið 14. apríl 1931. Haraldur Matthíasson tók saman.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFáir atburðir í stjórnmálasögu landsins á þessari öld hafa vakið meira umrót en þingrofið 14. apríl 1931. Þá hætti Alþýðuflokkur að veita ríkisstjórn Framsóknarflokks hlutleysi og náði samkomulagi við Sjálfstæðisflokk um breytingu á kjördæmaskipan, sem Framsóknarflokkur vildi ekki fallast á. Sjálfstæðisflokkur bar fram vantraust á stjórnina og Alþýðuflokkur lýsti stuðningi við það. Með samþykkt vantrauststillögunnar yrði stjórnin á fara frá. Þá gerðist það óvænt að Tryggvi Þórhallsson kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í upphafi þingfundar og las upp konungsbréf um þingrof. Mikil háreysti varð í salnum, þingmenn spruttu úr sætum, stór orð féllu og stjórnarandstæðingar töldu þingrofið stjórnarskrárbrot. Fundur í sameinuðu Alþingi skyldi hefjast kl. 1. Haraldur Matthíasson, höfundur bókarinnar og þáverandi ritari á Alþingi, kom inn nokkrum mínútum fyrr og settist í skrifarasætið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHaraldur Matthíasson skrifar hér sögu Þingrofsmálsins 1931. Bókin er einstök heimild um þessa atburði, rituð af vandvirkum sjónarvotti.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123749486920,"sku":"OSC-49573","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/55106.jpg?v=1754765880","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ingrofi-14-april-1931-55106-49573","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}