{"product_id":"insjallah-59106-45773","title":"Insjallah # 59106","description":"Insjallah á slóðum araba. Jóhanna Kristjónsdóttir segir frá.\u003cbr\u003eJóhanna er flestum Íslendingum fróðari um málefni landanna fyrir botni Miðjarðarhafs og fyrir nokkrum árum hóf hún nám í arabísku í Egyptalandi og síðan Sýrlandi. Í þessari fjörlegu frásögn fylgjumst við með torsóttu námi, húsnæðisbasli og erfiðleikum við að átta sig á framandi aðstæðum. Við kynnumst fólkinu í þessum fjarlæga heimshluta, samfélagi þess og siðum. Jóhanna bregður upp lifandi myndum af greiðvikni og glaðværð, töfrum og merkum menningarminjum, en líka misskilningi og menningarlegum árekstrum. Þörf bók á tímum ranghugmynda um líf og menningu múslima. (Bókatíðindi 2001).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124098236744,"sku":"OSC-45773","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/59106.jpg?v=1754777076","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/insjallah-59106-45773","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}