{"product_id":"island-erforscht-erschaut-erlebt-88995","title":"Island. Erforscht, Erschaut, Erlebt! # 88995","description":"\u003cp\u003eIsland. Erforscht, Erschaut, Erlebt! Eine erlebnismäsige Schilderung der Insel am Polarkreis. Paul Burkert. Mit 50 Abbildungen.\u003cbr\u003eÍ tilraunum Himmlers til að komast til áhrifa hér á landi er ein aðalsögupersónan ljósmyndarinn Paul Burkert sem m.a. var stoð og stytta ólympíufaranna sem kepptu í Berlín 1936. Burkert útvegaði m.a. tveim íslenskum læknum námsstöður við sjúkrahús í Berlín og Hamborg. Burkert þóttist vera einhvers konar vísindamaður, en það hafði hann að yfirvarpi þegar hann fór í njósnaleiðangra til Íslands og Grænlands á árunum 1934-1937. Það verður ekki af Burkert tekið að hann var snjall ljósmyndari. Hann gerði kynningarkvikmynd fyrir Fiskimálanefnd um land og þjóð til að reyna að auka sölu á fiskafurðum. Myndin var gerð í samvinnu við Guðmund Kamban, fengin var að láni dönsk herflugvél sem kom hér við og teknar loftmyndir af Reykjavík og nágrenni. Gleðskapur íslenskra valdamanna á Hótel Borg var fyrirferðarmikill í myndinni en lítið fjallað um fiskvinnslu. Þetta makalausa fyrirtæki kostaði 11.000 krónur og var umsvifalaust afskrifað um 10.900 kr. og falið ofan í dýpstu skúffu fiskimálanefndar. \u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52645478891848,"sku":null,"price":39500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/88995.jpg?v=1773329021","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/island-erforscht-erschaut-erlebt-88995","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}