{"product_id":"islenskir-hellar-91254","title":"Íslenskir hellar # 91254","description":"\u003cp\u003eÍslenskir hellar. Eftir Björn Hróarsson.\u003cbr\u003eÍslensk náttúra kemur okkur stöðugt á óvart í fjölbreytni sinni og sláandi fegurð. Í þessu mikla verki er lýst undraveröld hraunhellanna á Íslandi sem hingað til hefur verið flestum hulin. Með stórfenglegum myndum og uppdráttum er lýst á fimmta hundrað hellum og um fæsta þeirra hefur verið fjallað á prenti fram til þessa. Bókin færir lesendum gríðarlega viðbót við lýsingu landsins því hellarnir eru samanlagt liðlega hundrað kílómetrar að lengd.\u003cbr\u003eHellafræðin er kynnt ítarlega til sögunnar og tilurð hraunhella útskýrð á glöggan og aðgengilegan hátt. Fjallað er um hraunrennsli og þær einstæðu myndanir sem íslenskir hraunhellar geyma og gerð grein fyrir hellarannsóknum, hellamennsku og umgengni í hellum. Þá er í verkinu að finna nákvæma staðsetningu flestra hellanna. Með hjálp tæplega þúsund stórfenglegra ljósmynda er hulunni svipt af heillandi veröld og lesendum boðið í ferðalag sem seint gleymist.\u003cbr\u003eHöfundur verksins, Björn Hróarsson, er jarðfræðingur og hellafræðingur sem stundað hefur rannsóknir á hraunhellum í aldarfjórðung. Hann hefur notið aðstoðar fjölmargra hellamanna og sérfræðinga á ýmsum sviðum við að draga upp þessa ítarlegu lýsingu, til dæmis eiga um 40 ljósmyndarar, innlendir og erlendir, myndir í bókinni. Allt leggst hér á eitt við að ljúka upp ævintýralegum leynislóðum sem fáir hafa kynnst og vitjað.\u003cbr\u003eVerkið var tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2006.\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54987300176200,"sku":null,"price":19500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/91254asa.jpg?v=1795097960","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/islenskir-hellar-91254","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}