{"product_id":"jakob-gunnlogsson-in-memoriam-14976-16191","title":"Jakob Gunnlögsson in memoriam # 14976","description":"Jakob Gunnlögsson in memoriam.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGefið út í tilefni 50 ára afmælis fyrirtækisins Jakob Gunnlögsson \u0026amp; Co. A\/S.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ Austurlandi 1.árg. 1907-1908. 11. tbl. er fjallað um Jakob Gunnlögsson. Þar segir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJakob Gunnlögsson er fæddur á Skagaströnd í Húnavatnssýslu 4. ágúst 1857. Foreldrar hans\u003cbr\u003evoru Gunnlögur Guttormsson, Guðmundssonar sýslumanns frá Krossavík,\u003cbr\u003eog kona hans Margrét Halldórsdóttir prófasts frá Melstað, systir Daníels\u003cbr\u003eprófast sem var á Hólmum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTveggja ára gamall misti Jakob föður sinn og fluttist skömmu síðar\u003cbr\u003emeð móðir sinni að Stóra-Eyrarlandi í Eyjafirði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e17 ára gamall réðist hann verzlunarmaður hjá Gránufélaginu á\u003cbr\u003eVestdalseyri við Seyðisfjörð, og var við þá verzlun í 9 ár, en síðustu\u003cbr\u003eárin þar var hann þó á vetrum í Kaupmannahöfn á skrifstofu Gránufélagsins\u003cbr\u003eþar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁrið 1883 varð hann verzlunarstjóri Gránufélagsins á Raufarhöfn,\u003cbr\u003eog hafði þann starfa á hendi þar til haustið 1893, að hann sigldi til\u003cbr\u003eKaupmannahafnar og tók að sér umboðssölustörf fyrir íslenzka kaupmenn.\u003cbr\u003eHefir hann síðan bæði keypt og selt vörur fyrir þá erlendis. Umboðsverzlun\u003cbr\u003ehans hefir síðan stöðugt aukist ár frá ári, og hefir hann nú einhverja\u003cbr\u003estærstu umboðsverzlun, sem rekin er við Ísland.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJakob Gunnlögsson kvæntist 1883 danskri konu, og verður silfurbrúðkaup\u003cbr\u003eþeirra hjóna næsta ár ef þau lifa.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞegar Jakob Gunnlögsson var á fermingaraldri mun hann hafa notið\u003cbr\u003etilsagnar hjá Jóhannesi heitnum Halldórssyni móðurbróður sínum á\u003cbr\u003eAkureyri og lært að skrifa hjá honum; enda varð hann, eins og frændur\u003cbr\u003ehans fleiri, ágætur skrifari. Hann skrifaði svo fagra og fjölbreytta hönd,\u003cbr\u003eað óhætt má segja, að enginn verzlunarmaður á íslandi tekur honum\u003cbr\u003efram, og stóð hann jafnfætis Gröndal og öðrum snillingum í því að geta\u003cbr\u003eritað fagurt og fjölbreytilega. Meðan Jakob gaf sig við skriftum á verzlunarskrifstofum\u003cbr\u003evar hann svo mikill afkastamaður í allri bókfærzlu og\u003cbr\u003ereikningaafgreiðslu að honum var viðbrugðið, og þótti þar fullkominn\u003cbr\u003etveggja manna maki.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126577922376,"sku":"OSC-16191","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/jakob_gunnl.jpg?v=1754829073","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/jakob-gunnlogsson-in-memoriam-14976-16191","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}