{"product_id":"jarhitabok-85260-41410","title":"Jarðhitabók # 85260","description":"Jarðhitabók. Eðli og nýting auðlindar. Guðmundur Pálmason tók saman.\u003cbr\u003eJarðhitabók Guðmundar Pálmasonar er í senn fræðirit og menningarsöguleg heimild við hæfi fróðleiksfúsra lesenda. Rakin er framvinda jarðhitarannsókna hér á landi og sagt frá þeim er ruddu þar braut. Fjallað er um uppruna og eðli jarðhitans, vinnslu hans og margvísleg not af honum í íslensku þjóðlífi. Lagt er mat á það hversu varanleg auðlind jarðhitinn sé. Þá er vikið að áhrifum nýtingar á umhverfið og rætt um nauðsynlega vernd jarðhitafyrirbæra. Loks er annáll ýmissa atburða sem tengjast rannsóknum og nýtingu jarðhita allt frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar. Höfundur veitir lesendum fræðilega sýn á þá miklu auðsuppsprettu sem jarðhitinn er og skýrir efnið með fjölda dæma, teikninga og ljósmynda. Þetta er grundvallarrit um eðli jarðhita og nýtingu hans hér á landi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHöfundurinn vann m.a. að rannsóknum á gerð jarðskorpunnar undir Íslandi. Þær skýrðu megindrætti í jarðskorpu landsins og gliðnunarbeltum landrekshryggja og öfluðu honum víðtækrar viðurkenningar á alþjóðavettvangi. Undir forustu hans urðu miklar framfarir í rannsóknum og nýtingu jarðhita hér á landi sem gerðu Jarðhitadeildina að einu fremsta þekkingarsetri heims á sviði jarðhitarannsókna. Með störfum sínum öðlaðist Guðmundur einstæða heildarsýn á eðli og nýtingu jarðhita sem hann miðlar lesendum í skýru máli í þessari bók.\u003cbr\u003eBókatíðindi.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124822737224,"sku":"OSC-41410","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/45219.jpg?v=1754788004","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/jarhitabok-85260-41410","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}