{"product_id":"jomsvikinga-saga-77085-58981","title":"Jómsvíkinga saga # 77085","description":"Jómsvíkinga saga. Ólafur Halldórsson bjó til prentunar og ritar inngang.\u003cbr\u003eJómsvíkinga saga er íslensk fornsaga sem segir frá víkingum sem stofnuðu virkið Jómsborg, og komu þar á bræðralagi hermanna sem voru kallaðir Jómsvíkingar.\u003cbr\u003eJómsvíkingasaga var samin á Íslandi um 1200 og er til í nokkrum handritum, sem eru talsvert ólík hvert öðru, og hefur samband þeirra valdið fræðimönnum heilabrotum. Yfirleitt er talað um fimm gerðir sögunnar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSagan er oftast prentuð eftir elsta handritinu, AM 291 4to. Flateyjarbók hefur náskyldan texta. Handritin AM 510 4to, og Sthlm. perg. 4to nr. 7 eru um sumt frábrugðin, og sama er að segja um latneska þýðingu sem Arngrímur lærði gerði eftir handriti sem nú er glatað. Jómsvíkinga saga var einnig notuð í Ólafs sögu Tryggvasonar eftir Odd munk og Ólafs sögu Tryggvasonar hinni mestu. Allar þessar gerðir má rekja til sama frumtexta.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122122752328,"sku":"OSC-58981","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/67813.jpg?v=1754737352","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/jomsvikinga-saga-77085-58981","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}