{"product_id":"jon-a-strympu-og-fleiri-sogur-50634-45909","title":"Jón á Strympu og fleiri sögur # 50634","description":"Jón á Strympu og fleiri sögur eftir Gunnstein Eyjólfsson.\u003cbr\u003eGunnsteinn Eyjólfsson var fæddur á Unaósi við Héraðsflóa í Norður-Múlasýslu 1. apríl 1866. Foreldrar hans voru Eyjólfur Magnússon og sinni kona hans Vilborg Jónsdóttir, gáfað bændafólk í ættir fram. Tíu ára fluttist hann vestur um haf með foreldrum sínum, er námu land nyrst í Nýa-Íslandi og nefndu bæ sinn Unaland. Engir voru þar þá skólar eða önnur mentunar skilyrði. Er því lítt skiljanlegt hvernig Gunnsteinn varð á fáum árum vel að sér, ekki aðeins í ensku og íslensku heldur og í almennum fræðum og sönglist. Segir sagan, að fyrsta hljóðfæri, sem hann náði í, hafi verið Langspil. Ungur eignaðist hann stofuorgel og kendi sér sjálfum að mestu að leika á það. Hann stóð snemma í broddi fylkingar í bygð sinni í leiklist og söngment. Hann skrifaði mikið um almenn mál, og auk þess merkilegar smásögur (sjá ritgjörð St. E. hér að framan). Þar við bættist erfiður búskapur, verslun, póstafgreiðsla, sveitarstjórnarstörf og margt fleira. Hann kvæntist ungur Guðfinnu Eiríksdóttur frá Heiðarseli í Hróarstungu, og áttu þau saman 9 börn, sem öll eru á lífi og mörg hafa fengið söngmentun að meira eða minna leyti. En heilsan var ekki sterk og henni að líkindum ofboðið; og hinn 3. mars 1910 andaðisi hann í Roehester, Minn., eftir holskurð, þá tæpra 44 ára.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124091257160,"sku":"OSC-45909","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/50634.jpg?v=1754776771","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/jon-a-strympu-og-fleiri-sogur-50634-45909","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}