{"product_id":"jonsbok-53837-48507","title":"Jónsbók # 53837","description":"Jónsbók. Saga Jóns Ólafssonar athafnamanns. Einar Kárason tók saman.\u003cbr\u003eEinn fremsti rithöfundur þjóðarinnar skráir umbúðalaust sögu eins litríkasta athafnamanns Íslendinga á síðustu áratugum. Ferill Jóns Ólafssonar er ævintýri líkastur, allt frá því að hann er ofvirkur bæjarvillingur í Keflavík og þar til hann er kominn í hóp auðugustu manna Íslands. Smám saman lætur hann meira að sér kveða í íslensku athafnalífi og lendir þá oft í andstöðu við valdamikla aðila sem taka fast á móti. Þetta er mikil, spennandi og dramatísk saga. Einar Kárason byggir á ítarlegum viðtölum við fjölda fólks sem komið hefur við sögu Jóns, bæði vini og fjandvini, og atburðir og persónur samtímans stíga hér ljóslifandi fram í skemmtilegri og fjörlegri frásögn – og margt kemur hér fram sem mun koma þjóðinni á óvart. (Bókatíðindi 2005).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123873349960,"sku":"OSC-48507","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/53837.jpg?v=1754769199","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/jonsbok-53837-48507","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}