{"product_id":"jotru-og-thjosagnir-76281-56088","title":"Þjóðtrú og þjóðsagnir # 76281","description":"Þjóðtrú og þjóðsagnir. Safnað hefir Oddur Björnsson. Jónas Jónasson bjó undir prentun. Önnur útgáfa, aukin. Steindór Steindórsson frá Hlöðum annaðist útgáfuna.\u003cbr\u003eÞjóðsögur og safnir og margvíslegur alþýðlegur fróðleikur, sem myndast meðal alþýðu allra siðaðra þjóða og lifir oft og tíðum öldum saman óskrásettar á vörum hennar, er réttilega í hávegum hafður og þessari alþýðuauðlegð haldið á lofti og hún varðveitt vel af þjóðlegustu fróðleiks- og vísindamönnum þjóðanna. Árið 1908 kom út á Akureyri sérstætt safn þjóðsagna sem nefndist \u003cb\u003eÞjóðtrú og þjóðsagnir\u003c\/b\u003e. Oddur Björnsson prentmeistari hafði annast söfnum til þess og kostað útgáfuna, en síra Jónas Jónasson á Hrafnagili bjó safnið til prentunar og skrifaði merkan formála um þjóðtrú og þjóðsagnir og menningasögulegt gildi þeirra. Þjóðsagnasafn Odds Björnssonar er löngu uppseld, og hefir mikil og vaxandi eftirspurn verið eftir því, einkum hin síðari ár, enda er það næsta torfengið. Eigi alls fyrir löngu fannst í dóti Odds Björnssonar böggull með þjóðsagnahandritum, sem ljóst var að var frá hinni fyrstu söfnun hans. Sögumenn og skrásetjarar voru allmargir, þar á meðal Oddur sjálfur. En flestar sögurnar hafa þeir skrásett Benedikt Guðmundsson (1879-1919) kennari frá Hringveri á Tjörnesi og Theódór Friðriksson rithöfundur (1876-1948) á árunum 1907-1911. Augljóst er að síra Jónas hefir lesið handritið yfir, leiðrétt stafvillur vikið við orðalagi eftir því sem betur fór. Steindór Steindórsson frá Hlöðum hefur nú búið til prentunnar þessa nýju og auknu útgáfu af inu gagnmerka og skemmtilega þjóðsagnasafni Odds Björnssonar. (Káputexti).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122616238408,"sku":"OSC-56088","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/76281.jpg?v=1754746998","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/jotru-og-thjosagnir-76281-56088","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}