{"product_id":"kanadathistill-61745-17534","title":"Kanadaþistill # 89963","description":"Kanadaþistill. Ljóð eftir Guttorm J. Guttormsson.\u003cbr\u003eGuttormur J. Guttormsson (21. nóvember 1878 – 1966) var vesturíslenskt skáld sem skrifaði auk þess nokkur leikrit. Foreldrar Guttorms voru Jón Guttormsson (1841-1896) og Pálína Ketilsdóttur (1849-1886) en þau fluttust til Vesturheims árið 1875 en þá var Öskjugos var nýhafið og hafís var landfastur ár eftir ár. Pálína var frá Mjóanesi í Vallnahreppi í Suður-Múlasýslu og Jón var frá Arnheiðarstöðum í Valþjófsstaðarsókn í Norður-Múlasýslu. Þessir bæir standa sinn hvorum megin við Lagarfljót. Foreldrar Guttorms dóu er hann var barn að aldri og þau munu hafa búið við kröpp kjör. Guttormur fæddist að Víðivöllum í Nýja-Íslandi og bjó lengst af á föðurleifð sinni. Hann var þrjú ár í barnaskóla en var að öðru leyti sjálfmenntaður. Hann var eitt af helstu skáldum vestur-íslenskum á tuttugustu öld, ásamt Stephan G. Stephansson og Káinn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKvæði hans birtust fyrst í íslenskum vikublöðunum í Kanada, en fyrsta bók hans kom út í Winnipeg árið 1909 og nefndist Jón Austfirðingur.\u003cbr\u003eHeildarútgáfa af ljóðum hans kom út í Reykjavík árið 1947 og nefndist Kvæðasafn. Guttormur fékkst einnig við leikritaskrif og komu út eftir hann í Reykjavík árið 1930, og nefndist bókin: Tíu leikrit.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126465298760,"sku":"OSC-17534","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/89963.jpg?v=1781876630","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kanadathistill-61745-17534","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}