{"product_id":"kotlugosi-1918-78813-40826","title":"Kötlugosið 1918 # 78813","description":"Kötlugosið 1918. Frásagnir úr Vík og Heiðardal í Mýrdal, Hjörleifshöfða, Skaftártungu, Álftaveri, Meðallandi og Síðu. Safnað hefir og samið Guðgeir Jóhannsson kennari í Vík.\u003cbr\u003eFrásagnir sjónarvotta.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKötlugosið 1918 stóð frá 12. oktober til 4. nóvember. Eru til tvær samtímalýsingar um það eftir Gísla Sveinsson, sýslumann, og Guðgeir Jóhannsson, kennara í Vík. Hlaupið kom snögglega og öllum að óvörum. Fólk varð að flýja bæi sína, bæði í Álftaveri og Meðallandi. Það olli miklum skemmdum á jörðum þar og fluttu allmargir ábúendur í burtu, en tvær jarðir í Álftaveri, Skálmarbæjarhraun og Sauðhúsnes komust ekki aftur í byggð. Öskufall varð mest í Skaftártungu og farga varð miklum hluta búfénaðar á öllu svæðinu vegna fóðurskorts. Í hlaupinu myndaðist Kötlutangi, sem eftir miðjan vetur mældist 2000 - 3000 faðma frá gömlu ströndinni suður af Hjörleifshöfða og varð þá syðsti tangi landsins, en síðan hefur hann að mestu eyðzt.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124859404616,"sku":"OSC-40826","price":19500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/78813.jpg?v=1754789510","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kotlugosi-1918-78813-40826","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}