{"product_id":"krossgotur-lfatru-alfabyggir-og-bannhelgi-a-slandi-60218-53569","title":"Krossgötur. Álfatrú, álfabyggðir og bannhelgi á Íslandi # 60218","description":"Krossgötur. Álfatrú, álfabyggðir og bannhelgi á Íslandi. Texti Bryndís Björgvinsdóttir. Ljósmyndir Svala Ragnarsdóttir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍslensk þjóðtrú geymir fjölmargar frásagnir af ákveðnum siðum sem menn skulu viðhafa í umgengni sinni við álfa og huldufólk. Þessir siðir hafa haldist merkilega óbreyttir í gegnum aldirnar – að minnsta kosti sá hluti þeirra sem snýr að skilyrðislausri virðingu fyrir bústöðum álfa og huldufólks. Nú sem fyrr hafa slík bannhelg svæði áhrif á framkvæmdir manna, allt frá vegalagningu til byggingu sólpalla.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ þessari bók eru fimmtíu og fjórir álfasteinar, huldufólksklettar, dvergasteinar og aðrir bannhelgir staðir um allt land, teknir til skoðunar í máli og myndum, um leið og hinn forni átrúnaður á nábýli mannfólks og yfirnáttúrulegra vætta er settur í samhengi við sögu, listir og fræði. Krossgötur er einstök lesning fyrir alla þá sem hafa áhuga á einni þekktustu þjóðtrú Íslendinga og þeim sýnilegu áhrifum sem hún hefur í borg og sveit.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123003523400,"sku":"OSC-53569","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/60218.jpg?v=1754755020","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/krossgotur-lfatru-alfabyggir-og-bannhelgi-a-slandi-60218-53569","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}