{"product_id":"kuaskitur-og-norurljos-69463-18731","title":"Kúaskítur og norðurljós # 69463","description":"Kúaskítur og norðurljós. Ljóð eftir Steinunni Sigurðardóttir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eSjálfsmyndir á sýningu\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSál mín var dvergur á dansstað í gær,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehún bankaði vongóð í hné og bauð píunum upp.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞær hrylltu sig allar og höfnuðu bæklaðri sál.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSú fékk að húka á barnum\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog dansaði ein eftir tvö, ef dans skyldi kalla.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e-\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSálin í mér er stelpa sem krotar á veggi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÚtskeif með aflraunalæri og gengur á tám.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHún er fött í bak, með fituhnúð fyrir brjóst,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog ferðast um búningsklefann á teygjuslappri brók.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞað er blýantsstubbur í krepptum hnefa\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog hún bíður færis þegar enginn sér til.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSvona sál getur farið í bófahasar og pissað úti.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEn á jólunum heimtar hún slaufu í drengjakoll og syngur\u003cbr\u003e\u003cbr\u003emeð svo það glittir í dinglandi tönn. Hei-eims um ból.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126250078536,"sku":"OSC-18731","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/69463.jpg?v=1754825485","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kuaskitur-og-norurljos-69463-18731","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}