{"product_id":"kvaeabok-eptir-benedikt-grondal-58569-52330","title":"Kvæðabók eptir Benedikt Gröndal # 58569","description":"Kvæðabók eptir Benedikt Gröndal (Sveinbjarnarson).\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHér spreytir Gröndal sig á m.a. á þýðingum - Schiller. - F.L. Stolberg. - Heine. - Theodor Körner. - Goethe.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBenedikt Gröndal var skáld, bókmennta- og náttúrufræðingur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHann var fæddur á Eyvindarstöðum á Álftanesi 1826, sonur Sveinbjarnar Egilssonar, síðar rektors, og Helgu Benediktsdóttur Gröndal. Hann varð stúdent úr Bessastaskóla 1846 og stundaði nám í náttúrufræðum og bókmenntum við Kaupmannahafnarháskóla, lauk meistaraprófi í norrænum fornbókmenntum 1863. Kenndi við Reykjavíkurskóla 1852-1854 en fór til Louvain í Belgíu 1857 í kompaníi við Etienne Djunkovsky, kaþólskan trúboða. Sinnti ýmsum rit- og kennslustörfum, síðast við Lærða skólann 1874–1883. Lést í Reykjavík 2. ágúst 1907.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBenedikt gaf út fjölda ritverka, ljóð, rímur, greinar, þýðingar og leikrit. Fyrsta verk Gröndals sem út gekk á prent var Brev til Islænderne om en munk i Norge, 1849. Síðan komu - Drápa um Örvar-Odd, 1851 og þýðingar á sögum úr Þúsund og einni nótt 1852.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123132170568,"sku":"OSC-52330","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/58569.jpg?v=1754758121","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kvaeabok-eptir-benedikt-grondal-58569-52330","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}