{"product_id":"kvaeabok-jons-helgasonar-professors-80114-41579","title":"Kvæðabók Jóns Helgasonar prófessors # 80114","description":"Kvæðabók Jóns Helgasonar prófessors.\u003cbr\u003eJón varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1916, aðeins 17 ára að aldri og hafði þá aðeins setið einn vetur sem reglulegur nemandi. Mag. art í norrænum fræðum varð Jón við Kaupmannahafnarháskóla árið 1923. Jón varði svo doktorsritgerð sína um Jón Ólafsson frá Grunnavík þann 7. janúar 1926. sama ár kom ritgerðin út í bókarformi í Kaupmannahöfn. Jón kenndi við háskólann í Osló veturinn 1926-27 en var skipaður forstöðumaður handritasafns Árna Magnússonar 1927 í Kaupmannahöfn þar sem hann bjó allar götur síðan. Tveimur árum síðar tók Jón við stöðu Finns Jónssonar og var skipaður prófessor í íslenskri tungu og bókmenntum við Hafnarháskóla. Þá höfðu raunar þrjár stöður verið sameinaðar í eina: prófessor staða Finns, prófessorsstaða Valtýs Guðmundssonar í íslensku máli og bókmenntum og staða forstöðumanns Árnasafns. Þessu embætti gegndi Jón í 40 ár.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124814610760,"sku":"OSC-41579","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/60597.jpg?v=1754787766","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kvaeabok-jons-helgasonar-professors-80114-41579","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}