{"product_id":"kvaeasafn-og-sogur-11926-13984","title":"Kvæðasafn og sögur # 11926","description":"Kvæðasafn og sögur 1976-2003. Smásögur og ljóð eftir Kristján Karlsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHér birtist úrval kvæða úr kvæðabókum höfundar og einnig úrval smásagna. Kristján Karlsson er eitt frjóasta og frumlegasta ljóðskáld okkar í seinni tíð. Rætur hans spretta úr þingeyskri menningu en síðan forframast hann með langri dvöl í New York og víðar erlendis og sest síðan að í Reykjavík. Kristján er bókmenntafræðingur og hefur staðið að viðamikilli útgáfu bókmennta m.a. stærsta yfirlitsverki íslenskra ljóða og þýddra ljóða á íslenska tungu. Kvæði Kristjáns bera með sér að þar fer menntaður heimsmaður með rætur í íslenskri menningu. Hann skírskotar m.a. til myndlistar, menningarsögu, setninga úr skáldskap og samferðamanna sinna. Eru kvæðin bæði hefðbundin og nútímaleg í senn. Þannig renna fortíð og nútíð saman og frumleg kvæði ort fyrir framtíðina blasa við augum lesandans.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSögur Kristjáns gerast í Bandaríkjunum og hér heima. Þær fjalla um mannlífið og kafa undir yfirborð þess. Voru sögurnar taldar til viðburðar í íslenskri smásagnagerð, svo sérstakar og nútímalegar þóttu þær. Þær hafa sannarlega staðist tímans tönn og verða lesendum sínum jafnan hugleiknar og minnisstæðar í senn.\u003cbr\u003e(Bókatíðindi 2005)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126682845512,"sku":"OSC-13984","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/61240_95b88586-3f73-48f3-b922-d0e9aa396a06.jpg?v=1754831878","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kvaeasafn-og-sogur-11926-13984","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}