{"product_id":"kvaeasafn-snorra-hjartarsonar-80721-56570","title":"Kvæðasafn Snorra Hjartarsonar # 80721","description":"Kvæðasafn Snorra Hjartarsonar.\u003cbr\u003eSnorri Hjartarson (1906-1986) var eitt listfengasta ljóðskáld þjóðarinnar á 20. öld og fjölbreytilegt höfundarverk hans myndar um margt einstaða heild. Fáir hafa sameinað jafn vel tvenna tíma hefðar og nýunga í sinni ljóðagerð, hvort sem litið er til forms eða hugmyndaheims. Fyrir síðustu bók sína, \u003cb\u003eHauströkkrið yfir mér\u003c\/b\u003e, hlaut Snorri Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1981.\u003cbr\u003eÞessi nýja útgáfa Kvæðasafn Snorra, sem gefin er út í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu hans, geymir allar ljóðabækur hans: Kvæði, Á Gnitaheiði, Lauf og stjörnur og Hauströkkrið yfir mér, auk þess sem prentuð eru 26 eftirlátinna ljóða Snorra, sem eru kærkomin viðbót við kvæðasafn hans.\u003cbr\u003eBókin er auk þess prydd myndum sem aldrei áður hafa komið fyrir almenningssjónir; af eiginhandritum Snorra og ljósmyndum úr einkasafni hans. Hjörtur Pálsson rithöfundur ritar ítarlegan inngang um skáldið og verk hans.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122554470728,"sku":"OSC-56570","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/64443.jpg?v=1754745473","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kvaeasafn-snorra-hjartarsonar-80721-56570","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}