{"product_id":"kvaedi-eptir-bjarna-thorarensen-88032-11530","title":"Kvæði eptir Bjarna Thórarensen # 88032","description":"Kvæði eptir Bjarna Thórarensen.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBjarni Thorarensen (30. desember 1786- 25. ágúst 1841) var amtmaður fyrir norðan og austan sem bjó að Möðruvöllum. Þrátt fyrir miklar embættisannir orti Bjarni talsvert og var hann helsti boðberi rómantísku stefnunnar á Íslandi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBjarni fæddist á Brautarholti á Kjalarnesi. Móðir Bjarna var Steinunn, dóttir Bjarna Pálssonar landlæknis og faðir hans Vigfús Þórarinsson. Vigfús varð sýslumaður í Rangárvallasýslu 1789 og sat á Hlíðarenda í Fljótshlíð og er Bjarni alinn þar upp. Hann lærði hjá einkakennurum undir stúdentspróf og lauk því 15 ára.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBjarni sigldi síðan til Kaupmannahafnar og lauk lagaprófi frá Hafnarháskóla er hann stóð á tvítugu en starfaði síðan í danska kansellíinu í nokkur ár. Bjarni mun hafa hlustað á einhverja af þeim fyrirlestrum sem Henrich Steffens hélt í Kaupmannahöfn 1802-1803 um rómantísku stefnuna og hann hreifst af skáldum er ortu í hennar anda, svo sem danska skáldinu Adam Oehlenschlager og þýska skáldinu Friedrich Schiller.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBjarni sneri til Íslands 1811 og varð nokkru síðar dómari í Landsyfirréttinum og þjónaði auk þess stiftamtmanns- og amtmannsembættinu í suðuramtinu í afleysingum 1814-1815 og aftur 1817-1819. Hann varð síðan sýslumaður í Árnessýslu 1820 en 1822 varð hann aftur dómari við Landsyfirréttinn og bjó í Gufunesi. Eftir nokkrar raunir í kvennamálum, sem hann kenndi Magnúsi Stephensen alfarið um, kvæntist hann Hildi, dóttur Boga Benediktssonar úr Hrappsey, og áttu þau fjölda barna.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBjarni kom að stofnun Fjallvegafélagsins árið 1831 sem hafði það að markmiði að bæta samgöngur á Íslandi. Bjarni var skipaður amtmaður í Norður- og austuramtinu árið 1833. Flutti hann þá að Möðruvöllum í Hörgárdal og bjó þar til dauðadags og þar er hann einnig grafinn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMörg þekktustu ljóð Bjarna eru ættjarðar- eða náttúruljóð, svo sem Íslands minni (Eldgamla Ísafold), Ísland (Þú nafnkunna landið sem lífið oss veitir) og Veturinn en hann orti einnig alkunn ástarljóð og erfiljóð. Af þeim síðastnefndu er þekktast kvæðisbrotið sem hann orti eftir Baldvin Einarsson og hefst á orðunum „Ísalands óhamingju verður allt að vopni.“\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eÍslands minni\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEldgamla Ísafold,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eástkæra fósturmold,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003efjallkonan fríð.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMögum þín muntu kær,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003emeðan lönd girðir sær\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog gumar girnast mær,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003egljáir sól á hlíð.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440234656072,"sku":"OSC-11530","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/8656.jpg?v=1770470533","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kvaedi-eptir-bjarna-thorarensen-88032-11530","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}