{"product_id":"kvaei-03-68656-59633","title":"Kvæði 03 # 68656","description":"Kvæði 03. Ljóð eftir Kristján Karlsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKristján Karlsson fæddist þann 26. janúar 1922 að Eyvík á Tjörnesi í Suður-Þingeyjarsýslu. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1942 lagði hann stund á nám í enskum bókmenntum við University of Berkeley í Kaliforníu og lauk þaðan B.A.-prófi 1945. Hann hélt til New York í framhaldsnám við Columbia University og lauk þaðan M.A.-prófi í samanburðarbókmenntum 1947.\u003cbr\u003eKristján hefur fengist við ljóðasmíð, smásagnagerð og greinaskrif auk þýðinga. Hann hefur ennfremur ritstýrt fjölda bóka. Hann stóð að ýmiss konar útgáfum áður en hann sendi frá sér ljóðabókina Kvæði árið 1976. Hann hlaut Davíðspennann 1991 fyrir ljóðabókina Kvæði 90 og viðurkenningu Rithöfundarsjóðs Ríkisútvarpsins ári síðar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBókasöfnin í Amsterdam\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAfsakið vinsamlegast dýru dömur\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehlið við hlið\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eí gluggakistum: mitt gamla\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþorpsbókasafn og löngu fallið\u003cbr\u003e\u003cbr\u003erís hvítt glugghátt virkisbyggt\u003cbr\u003e\u003cbr\u003econ merlatura\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eeitt andartak milli ykkar og mín\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehillu af hillu:","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122054627656,"sku":"OSC-59633","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/68656.jpg?v=1754735108","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kvaei-03-68656-59633","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}