{"product_id":"kvaei-84-23179-5987","title":"Kvæði ´84 # 23179","description":"Kvæði ´84 eftir Kristján Karlsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKristján Karlsson fæddist þann 26. janúar 1922 að Eyvík á Tjörnesi í Suður-Þingeyjarsýslu. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1942 lagði hann stund á nám í enskum bókmenntum við University of Berkeley í Kaliforníu og lauk þaðan B.A.-prófi 1945. Hann hélt til New York í framhaldsnám við Columbia University og lauk þaðan M.A.-prófi í samanburðarbókmenntum 1947. Kristján hefur fengist við ljóðasmíð, smásagnagerð og greinaskrif auk þýðinga. Hann hefur ennfremur ritstýrt fjölda bóka. Hann stóð að ýmiss konar útgáfum áður en hann sendi frá sér ljóðabókina Kvæði árið 1976. Hann hlaut Davíðspennann 1991 fyrir ljóðabókina Kvæði 90 og viðurkenningu Rithöfundarsjóðs Ríkisútvarpsins ári síðar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eDaglegt líf fyrir sextíu árum I\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003etvisvar\u003cbr\u003e\u003cbr\u003evar systirin leidd fyrir rétt\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehlaut vægan dóm, í byrjun júní\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esöngleikar\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eí Iðnó tæmdu vitund\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ealmennings hvað eftir annað\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ebróðirinn\u003cbr\u003e\u003cbr\u003edó ríkur eftir langdregið vor fyrr eða síðar\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eí símskeyti frá Argentínu\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehéðan séð\u003cbr\u003e\u003cbr\u003elítur vorið þegar kona drap bróður sinn\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eá Grettisgötunni þannig út:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003etilfinningalíf\u003cbr\u003e\u003cbr\u003efólksins breiðist út, eyðileg\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ebyggðin þéttist í sólskininu\u003cbr\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51127142711624,"sku":"OSC-5987","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/23179.jpg?v=1754839729","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kvaei-84-23179-5987","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}