{"product_id":"kvaei-eptir-bjarna-thorarensen-64073-52575","title":"Kvæði eptir Bjarna Thórarensen # 64073","description":"Kvæði eptir Bjarna Thórarensen.\u003cbr\u003eBjarni fæddist á Brautarholti á Kjalarnesi. Móðir Bjarna var Steinunn, dóttir Bjarna Pálssonar landlæknis og faðir hans Vigfús Þórarinsson. Vigfús varð sýslumaður í Rangárvallasýslu 1789 og sat á Hlíðarenda í Fljótshlíð og er Bjarni alinn þar upp. Hann lærði hjá einkakennurum undir stúdentspróf og lauk því 15 ára.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBjarni sigldi síðan til Kaupmannahafnar og lauk lagaprófi frá Hafnarháskóla er hann stóð á tvítugu. Bjarni mun hafa hlustað á einhverja af þeim fyrirlestrum sem Henrich Steffens hélt í Kaupmannahöfn 1802-1803 um rómantísku stefnuna og hann hreifst af skáldum er ortu í hennar anda, svo sem danska skáldinu Adam Oehlenschlager og þýska skáldinu Friedrich Schiller. Bjarni sneri til Íslands 1811 og varð nokkru síðar dómari í Landsyfirréttinum. Eftir nokkrar raunir í kvennamálum kvæntist hann Hildi, dóttur Boga Benediktssonar úr Hrappsey.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBjarni kom að stofnun Fjallvegafélagsins árið 1831 sem hafði það að markmiði að bæta samgöngur á Íslandi. Bjarni var skipaður amtmaður fyrir í Norður- og austuramtinu árið 1833. Flutti hann þá að Möðruvöllum í Hörgárdal og bjó þar til dauðadags og þar er hann einnig grafinn.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123114082632,"sku":"OSC-52575","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/64073.jpg?v=1754757479","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kvaei-eptir-bjarna-thorarensen-64073-52575","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}