{"product_id":"kvaei-eptir-undinu-86710-71923","title":"Kvæði eptir Undínu # 86710","description":"Kvæði eptir Undínu. Með myndum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eUndína (1858 - 1941 ) var frá Litlu-Ásgeirsá í Víðidal í Húnaþingi, dóttir Baldvins Helgasonar og Soffíu Jósafatsdóttur. Þau settust fyrst að í Rousseau í Muskoka í Ontario en síðar í Norður Dakota. Undína var tvígift, fyrri eiginmaðurinn var drykkfelldur og hún skildi við hann, sá síðari dó 1904.\u003cbr\u003eSíðan bjó hún á vesturströndinni til dauðadags, síðustu árin í skjóli Sophiu dóttur sinnar. Undína orti mest fyrir og um aldamótin, en lítið eftir það. Hún vakti verðskuldaða athygli bókmenntamanna vestra. Kvæði hennar eru einföld og ljóðræn, mörg þeirra ættjarðarljóð. Bestu ljóð hennar eru dapurleg og rómantísk, birta rótleysistilfinningu landnemanna á látlausan hátt. Heildarútgáfa á ljóðum hennar kom út 1952, Kvæði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eJólin um\u003cbr\u003edaginn\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJeg man hversu dapurt um daginn\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog dauðalegt útlitið var,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþá sorglega svipþunga blæinn\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eöll sjáanleg tilvera bar;\u003cbr\u003e\u003cbr\u003edimmt var, það sást ekki sólin,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog samt voru þá komin jólin.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHríðin á húsþaki dundi\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog hálffylti gluggann með snjó,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eeinmana í illviðri stundi\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eeikin í líðandi ró,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþví geislandi græðandi sólin\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehún gat þá ei vermt hana um jólin.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMitt hjarta varð bugað af harmi\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eer hátíð svo dapra jeg leit;;\u003cbr\u003e\u003cbr\u003een vonin mjer bærðist í barmi\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog bæn mín varð örugg og heit,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eað ljómandi, lífgandi sólin\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþá lýsi er næst koma jólin.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51119779610952,"sku":"OSC-71923","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/86710.jpg?v=1754691429","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kvaei-eptir-undinu-86710-71923","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}