{"product_id":"kvaei-og-sogur-eftir-johann-gunnar-sigursson-76138-52293","title":"Kvæði og sögur eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson # 76138","description":"Kvæði og sögur eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson. Helgi Sæmundsson hefur annast útgáfuna. Önnur útgáfa.\u003cbr\u003eJóhann Gunnar Sigurðsson skáld fæddist í Miklaholtsseli í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi 2.2. 1882. Foreldrar hans voru Sigurður Sigurðsson bóndi og k.h., Guðríður húsfreyja Jónasdóttir, bónda á Kársstöðum Ögmundssonar. Þau voru fremur fátækt bændafólk, höfðu eignast fimm börn og misst þau öll áður en Jóhann Gunnar fæddist.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJóhann Gunnar ólst þó upp við þokkalegar aðstæður en þótti einrænn og dreyminn. Hann var lengst af veill fyrir brjósti og veikbyggður unglingur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJóhann Gunnar hóf utanskólanám 1896, stundaði síðan undirbúningsnám hjá séra Sigurði Gunnarssyni í Stykkishólmi 1897, hóf nám við Reykjavíkurskóla 1898 og lauk stúdentsprófi með fyrstu einkunn heimastjórnarárið 1904. Hann hafði lengi haft áhyggjur af bágri heilsu sinni en skömmu áður en hann útskrifaðist kom í ljós að hann hafði veikst af berklum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAð loknu stúdentsprófi hóf hann nám við Prestaskólann í Reykjavík og lauk heimspekiprófi árið 1905. Hann veiktist svo í nóvember á því ári, varð að leggjast inn á spítala og átti ekki afturkvæmt þaðan. Hann féll fyrir hvíta dauða einungis tuttugu og fjögurra ára að aldri, 20.5. árið 1906.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJóhann Gunnar var um margt mjög dæmigerður fyrir hin nýrómantísku skáld. Hann orti gjarnan tregablandin og döpur ljóð en yrkisefni hans eru oftar en ekki dauðinn, ástin og hin óslökkvandi lífsþrá, enda lifði hann síðustu misserin í skugga dauðans. Auk þess sótti hann yrkisefni í dulúð íslenskra þjóðsagna. Þau skáld sem höfðu mikil áhrif á hann voru Jónas Hallgrímsson og Kristján fjallaskáld.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJóhann Gunnar var afkastamikið skáld þegar haft er í huga hve skammlífur hann var. Auk ljóða hans samdi hann nokkrar smásögur, s.s. Bréf. Flest verka hans er að finna í bókinni Kvæði og sögur sem kom út að honum látnum, 1909 og var endurútgefin 1944. Þá kom út úrval ljóða hans árið 1957. (www.mbl.is)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123134857544,"sku":"OSC-52293","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/76138.jpg?v=1754758233","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kvaei-og-sogur-eftir-johann-gunnar-sigursson-76138-52293","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}