{"product_id":"kvaei-og-stokur-40199-37130","title":"Kvæði og stökur # 40199","description":"Kvæði og stökur eftir Eirík Einarsson, Réttarholti Reykjavík.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEina bók Eiríks Einarssonar frá Réttarholti.\u003cbr\u003eEiríkur Einarsson var fæddur að Suður-Hvammi í Mýrdal árið 1891. Foreldrar hans voru hjónin Ingveldur Eiríksdóttir og Einar Þorsteinsson. Faðir Eiriks drukknaði við Landeyjarsand árið 1893. Eiríkur naut ekki menntunar umfram banaskóla en bjó að ágætis gáfum. Hann var glöggur reikningsmaður og slyngur íslenskumaður. Eiríkur var hagsýnn og harðduglegur þegar hann naut sín heilsunnar vegna. Hann lærði skósmíði hjá Sveini Þorlákssyni í Vík en stundaði þó aldrei skósmíðar að aðalatvinnu. Hann var góður sjómaður, fiskinn og eftirsóttur í skipsrúm. Hann var strangur og kröfuharður til sjálfs síns og eins við aðra, gekk fast eftir að staðið væri við gefin loforð, var maður orðheldin og stóðu loforð hans sem stafur á bók. Hann var um tíma rafstöðvarstjóri á Bíldudal og þar kynntist hann konu sinni Sigríði Benediktu Kristjánsdóttur. Búskapur þeirra hjóna var um skeið á Vatnsleysuströnd eð lengst og síðast í Réttarholti í Reykjavík og bjuggu þau þar í um 40 ár. Þau Sigríður eignuðust 15 dætur og má nærri um geta þvílíkan fjölda afkomenda sem eru frá þeim komin. Eiríkur lést í Reykjavík árið 1973.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eYndisleikinn ástarbál\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eeinatt tendrað hefur\u003cbr\u003e\u003cbr\u003etilfinninga talað mál\u003cbr\u003e\u003cbr\u003etækifærin gefur.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125099594056,"sku":"OSC-37130","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/63448_f666c038-ad22-42d4-9736-add5b2e4125b.jpg?v=1754796756","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kvaei-og-stokur-40199-37130","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}