{"product_id":"kvosin-byggingarsaga-mibaejar-reykjavikur-46388-42402","title":"Kvosin. Byggingarsaga miðbæjar Reykjavíkur # 46388","description":"\u003cp\u003eKvosin. Byggingarsaga miðbæjar Reykjavíkur. Höfundar Guðný Gerður Gunnarsdóttir, Hjörleifur Stefánsson. Ritstjóri Hjörleifur Stefánsson. Ljósmyndavinna Guðmundur Ingólfsson.\u003cbr\u003eÍ þessari bók er fjallað um hús, byggingarlist og byggingarhefðir í Reykjavík frá upphafi til okkar daga.\u003cbr\u003eKvosin, byggingarsaga miðbæjar Reykjavíkur, er frásögn af því hvernig höfuðborg Íslands byggðist.\u003cbr\u003eFjallað er um elstu húsagerð bæjarins, sagt frá húsum Innréttinganna, fyrstu verslunarhúsunum og hvernig húsagerð breyttist við afnám einokunar.\u003cbr\u003eSagt er frá því hvernig byggingar bæjarins breyttust við afnám verslunarhafta og við tilkomu nýrra verslunarsambanda. Fjallað er um þær breytingar sem ný byggingarefni höfðu í för með sér og greint frá átökum fúnksjónalismans við hinar gömlu stíltegundir á fjórða áratugnum.\u003cbr\u003eByggingarsaga hverrar einstakrar lóðar miðbæjarins er rakin. Greint frá helstu stefnum í byggingarlist í Norðurevrópu um og eftir seinustu aldamót og bent á áhrif þeirra í byggingum miðbæjarins.\u003cbr\u003eSaga þessi er rakin í máli og fjölmörgum nýjum og gömlum ljósmyndum, auk teikninga af húsum og húshlutum.\u003cbr\u003eÍ bókinni eru um 500 ljósmyndir og teikningar. Nýjar ljósmyndir eru af nánast öllum húsum miðbæjarins og auk þess úrval gamalla ljósmynda úr helstu ljósmyndasöfnum landsins. (Káputexti).\u003c\/p\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124771848520,"sku":"OSC-42402","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/88703_4000b035-43df-494d-9d52-3186e8ddde9f.jpg?v=1770736760","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/kvosin-byggingarsaga-mibaejar-reykjavikur-46388-42402","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}