{"product_id":"laeknaljo-61653-53769","title":"Læknaljóð # 61653","description":"Læknaljóð eftir Guðmund Thoroddsen.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGuðmundur Thoroddsen er fæddur á Ísafirði sonur hjónanna Theódóru skáldkonu og Skúla Thoroddsen.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eBlóðbankinn\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVið vorum eitt sinn ríkir, já við áttum yfrið nóg\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eaf enskum pundum, dollurum og krónum,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003een einhvern veginn komum við þó öllu þessu í lóg\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog auðæfin þau voru horfin\u003cbr\u003esjónum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEn Benjamín hann kunni ráð\u003cbr\u003esvo krónutalan jókst,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþótt kannski yrði gengið\u003cbr\u003eeitthvað minna,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog nýir bankar þutu upp og\u003cbr\u003eþarna ýmsum tókst,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esvo þægilegan værðarbás\u003cbr\u003eað finna.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOg trúir þjónar fengu bæði\u003cbr\u003evöld og virðing þar\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog vinnufrið og hvíld í ríkum mæli,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþví aðrir gerðu verkin, já eins og vera bar,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehver ætlast til að banka stjórar þræli?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinn lítill banki átti hús, en ekkert inventar,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esvo eiginlega var h a n n bara hálfur,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog yfir stöðu bankastjórans engin hrifning var,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehann átti að kunna á banka\u003cbr\u003eog vinna sjálfur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOg aldrei verður trúum þjóni þessi staða rétt,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003enei, þar er ekki mikils til að vinna,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eí bankastjórann þarna verður banakringlu slett,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþví beinin stóru fóru öll til hinna.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ viðtali við Frjálsa þjóð 9.árg. 46. tbl 1960, hefur Guðmundur þetta að segja um ljóðagerð sína:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e— Annars vil ég taka það fram að lokum, segir Guðmundur , að ég er ekki skáld,\u003cbr\u003eaðeins sæmilegur hagyrðihgur. Ég hef ekki ort nein ljóð — bara eina og eina vísu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122980061512,"sku":"OSC-53769","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/60467.jpg?v=1754754458","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/laeknaljo-61653-53769","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}